Samstarfssamningur og framkvæmdarstjóri
- umfgrund
- Jun 5
- 2 min read
Sunnudaginn 10. maí sl. undirritaði félagið samstarfssamning við Grundarfjarðarbæ. Samningurinn gildir í 4 ár. Markmið samningsins er að tryggja öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni ásamt því að styrkja starfið okkar.
Félagið hefur borðið upp á öflugt íþróttastarf fyrir börn og unglinga, en félagið býður upp á sjö íþróttagreinar og á næstu misserunum mun pílan bætast við. Utanumhald og umfang hefur aukist til muna á síðustu árum, en nýleg samantekt sýnir að 87,3% Grundfiskra barna og ungmenna tóku þátt í íþróttastarfi árið 2024, en meðaltalið á Vesturlandi var 76,3% og á landsvísu 79,6%.
Mörg íþróttafélög hafa ráðið til sín framkvæmdarstjóra til að halda utan um öll þau verkefni sem tengjast íþróttastarfinu og allri umsýslu félagsins. Félagið leitaði til bæjarins varðandi ráðningu framkvæmdarstjóra fyrir félagið og var velið tekið í það. Úr varð að í samstarfssamningi er gert ráð fyrir fjármagni til ráðningar framkvæmdarstjóra í hlutstarf og fögnum við þeim áfanga. Þetta er stórt og mikilvægt skref fyrir félagið svo við getum haldið áfram að byggja upp það flotta starf sem við höfum upp á að bjóða.
Félagið hefur ráðið Ingibjörgu Eyrúnu Bergvinsdóttur sem framkvæmdarstjóra félagsins, en hún hefur setið í stjórn félagsins síðastliðin þrjú ár og hefur gegnt formennsku í rúmt ár. Ingibjörg þekkir starfið vel og hefur sinnt flestum þeim verkefnum í sjálfboðavinnu sem hún mun mun sinna sem framkvæmdarstjóri.
Tryggvi Hafsteinsson sem einnig hefur setið í stjórn félagsins mun verða formaður félagsins.
Stjórnin verður því sem hér segir:
Tryggvi Hafsteinsson - Formaður
Sólveig Ásta Bergvinsdóttir - Gjaldkeri
Gyða Rós Freysdóttir - Ritari
Eva Kristín Kristjánsdóttir - Meðstjórnandi




Comments