
Knattspyrna
Yfirþjálfari: Gunnar Andri Pétursson
Þjálfarar: Pálmi Jóhannsson og Páll Hilmar Guðmundsson
Í vetur er boðið upp á æfingar fyrir 5. - 14. ára börn.
Æfingar fyrir elstu deild leikskólans og Eldhamra eru einu sinni í viku.
1. - 3. bekkur eru tvisvar í viku.
Stelpuæfingar 3. b+ eru tvisvar í viku.
4. - 6. bekkur og 7. b+ strákaæfingar eru þrisvar í viku.
Markmið æfinganna er að:
-
iðkendur læri undirstöðuatriði íþróttarinnar
-
iðkendur læri að vera góðir liðsfélagar
-
iðkendur læri að vinna saman og vera hluti af hópi
-
æfingar séu fjölþættar og skemmtilegar
-
íþróttamannsleg framkoma sé kennd
-
allir fái tækifæri til að vera með, að öll börn fái tækifæri til þátttöku og að allir fái sömu viðurkenningu fyrir þátttöku
Ungmennafélögin á Snæfellsnesi þ.e. Ungmennafélag Grundarfjarðar, UMF Víkingur/Reynir Snæfellsbæ og Snæfell Stykkishólmi keppa undir merkjum Snæfellsnessamstarfsins í knattspyrnu.
