
Siðareglur
Foreldrar
Hafið ávallt hugfast að:
-
Barnið þitt er í íþróttum vegna eigin ánægju en ekki til að gleðja þig.
-
Hvetja barnið þitt til þátttöku í íþróttum, ekki þvinga það.
-
Hrósa öllum iðkendum á meðan æfingu, leik eða keppni stendur, ekki aðeins þínu barni.
-
Hvetja börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Ekki gera grín að barni eða hrópa að því ef mistök eiga sér stað.
-
Virða rétt hvers barns, óháð kyni, kynstofni eða trúarbrögðum.
-
Börn læra mest af því að framkvæma. Lærðu að meta góða frammistöðu allra barna í hópnum.
-
Vera börnum fyrirmynd í því að taka ósigri af æðruleysi, taka sigri hrokalaust og sýna mótherjum kurteisi.
-
Bera virðingu fyrir störfum þjálfarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans meðan á leik eða keppni stendur.
-
Líta á dómarann sem leiðbeinanda barna, ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
-
Spyrja barnið hvort keppnin eða æfingin hafi verið skemmtileg eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
-
Læra að meta þátttöku sjálfboðaliða hjá félaginu því án þeirra hefði barnið þitt ekki möguleika á að stunda æfingar og keppni með félaginu.
-
Taka vel í þegar þú ert beðinn um aðstoð af félaginu og vera virkur þátttakandi í verkefnum sem snúa að rekstri félagsins.
Yngri iðkendur
Þú ættir að:
-
Gera alltaf þitt besta.
-
Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í íþróttum.
-
Taka þátt í íþróttum á eigin forsendum en ekki vegna þess að foreldrar þínir eða þjálfari vilja það.
-
Sýna öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
-
Forðast þrætur eða deilur við dómara og aðra starfsmenn leiksins/mótsins. Virtu ákvarðanir þeirra.
-
Sýna öðrum virðingu og vera heiðarlegur og opinn gagnvart þjálfara og forystufólki félagsins sem ber ábyrgð á þér við æfingar og keppni.
-
Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um mótherja, samherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
-
Koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
-
Mæta á réttum tíma á æfingar, keppnir eða annað sem viðkemur félaginu.
Eldri iðkendur
Þú ættir að:
-
Hafa heilbrigði alltaf að leiðarljósi. Forðast að taka áhættu varðandi heilsu þína með því að neyta ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.
-
Bera virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra. Forðast neikvæð ummæli og skammir óháð kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð
-
Vera heiðarlegur og opinn í samvinnu við þjálfara og aðra sem styðja þig.
-
Taka sjálfur höfuðábyrgð á framförum þínum og þroska.
-
Vera ávallt til fyrirmyndar varðandi framkomu og hafa ávallt hugfast að þú er fyrirmynd yngri iðkenda jafnt utan vallar sem innan.
-
Samþykkja aldrei eða sýna ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
-
Forðast náin samskipti við þjálfara þinn.
-
Sýna ávallt öðrum virðingu, jafnt í meðbyr sem mótbyr.
Þjálfarar
Þú ættir að:
-
Meðhöndlaða alla iðkendur á einstaklingsgrunni og á þeirra eigin forsendum. Hafa ber í huga að þú ert að byggja upp fólk, bæði líkamlega og andlega.
-
Styrktu jákvæða hegðun, framkomu og gagnrýni. Byggðu upp á jákvæðan hátt.
-
Sjáðu til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda með tilliti til aldurs, reynslu og hæfileika.
-
Haltu á lofti heiðarleika innan íþróttarinnar.
-
Viðurkenndu og sýndu virðingu þeim ákvörðunum sem dómarar taka.
-
Fáðu iðkendur til að vera með í ákvörðunum sem tengjast þeim. Kenndu þeim að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í íþróttinni.
-
Vertu jákvæður, réttlátur, umhyggjusamur og heiðarlegur gagnvart iðkendum þínum.
-
Settu ávallt á oddinn heilsu og heilbrigði iðkenda þinna og varastu að setja þá í aðstöðu sem ógnað gæti heilbrigði þeirra.
-
Talaðu alltaf gegn neyslu áfengis, tóbaks og notkunar ólöglegra lyfja.
-
Sýndu athygli og umhyggju þeim iðkendum sem orðið hafa fyrir meiðslum.
-
Leitaðu samstarfs við aðra þjálfara og sérfræðinga þegar þess þarf og viðurkenndu rétt iðkandans til að leita ráða frá öðrum þjálfurum.
-
Samþykktu aldrei ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
-
Beittu aldrei kynferðislegri áreitni né vertu í nánu samband við iðkanda þinn.
-
Taktu aldrei að þér akstur yngri iðkenda, hvorki á leiki né æfingar, nema með leyfi foreldra.
-
Forðastu samskipti gegnum síma og Internetið nema til boðunar æfinga og upplýsingagjafar.
-
Vertu meðvitaður um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan.
-
Komdu eins fram við alla iðkendur, óháð kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð.
-
Notfærðu þér aldrei aðstöðu þína sem þjálfari til að uppfylla eigin áhuga á kostnað iðkandans.
-
Forðastu að koma þér í þá aðstöðu að vera einn með iðkanda nema um fyrir fram ákveðna æfingu sé að ræða.
Stjórnarmaður
-
Stattu vörð um anda og gildi félagsins og sjáðu um að hvort tveggja lifi áfram meðal félagsmanna.
-
Hafðu ávallt í huga að í félaginu er verið að byggja upp fólk.
-
Komdu fram við alla félagsmenn sem jafningja, óháð kyni, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, litarhætti og kynhneigð.
-
Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
-
Haltu félagsmönnum vel upplýstum og gerðu félagsmenn að þátttakendum í ákvarðanatöku eins og hægt er.
-
Vertu ávallt til fyrirmyndar varðandi hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan.
-
Taktu alvarlega þá ábyrgð sem þú hefur gagnvart félaginu og iðkendum.
-
Farðu ávallt að lögum og reglum við rekstur félagsins.
-
Notfærðu aldrei stöðu þína hjá félaginu til eigin framdráttar á kostnað félagsins eða félagsmanna.
-
Taktu og beittu gangrýni á jákvæðan hátt.
Stuðningsmenn
Við biðjum stuðningsmenn félagsins að:
-
Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um mótherja, samherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
-
Líta á dómarana sem leiðbeinendur, ekki gagnrýna ákvarðanir þeirra á óviðeigandi hátt.
-
Viðhafa jákvæða gagnrýni.
-
Samþykkja aldrei að sýna ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
Stjórn félagsins
Aðalstjórn/aga og siðanefnd getur beitt eftirfarandi viðurlögum við brotum á siðareglum félagsins allt eftir alvarleika brots:
-
Tiltal
-
Áminning.
-
Tímabundinn brottvikning
-
Brottrekstur