Alexandra Björg í Dublin
- umfgrund
- Jun 27
- 1 min read
Þessa stundina er Alexandra Björg Andradóttir stödd úti í Dublin þar sem hún tekur þátt Evrópukeppni smáþjóða (SCA) í blaki. Þess má geta að Alexandra er á sextánda ári en er að keppa í fyrsta sinn með kvennalandsliði Íslands. Áður hefur hún spilað með U17 og U19 landsliðinu.
Fyrsti leikurinn var spilaður í dag á móti San Marino, en Ísland tapaði þeim leik 3-0. Næsti leikur er á móti Írlandi kl. 18 í dag.
Hægt er að fylgjast með leikjunum hér: https://m.youtube.com/@volleyballirelandvly
Áfram Alexandra - Áfram Ísland!





Comments