Blakmót um helgina í Grundarfirði og Ólafsvík
- umfgrund
- May 15
- 1 min read
Um helgina fer fram síðasti hluti Íslandsmótsins í blaki í U12 og U14 flokki. Mótið verður að þessu sinni haldið í Grundarfirði og Ólafsvík í umsjá UMFG. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið heldur barnamót í blaki en í haust hélt félagið neðri deildar mót í blaki kvenna.
Blakdeild og formaður UMFG hafa unnið saman að skipulagningu mótsins en gert er ráð fyrir rúmlega 200 keppendum, yfir 40 liðsstjórum og þjálfurum og einnig fylgja foreldrar með hópunum. Þetta er því stórt verkefni sem við tökum á móti með bros á vör.
Gengið hefur vel að manna vaktir í skóla, sjoppu, matseld og erum við þakklát foreldrahópnum okkar fyrir þá vinnu sem þau eru tilbúin að leggja á sig til þess að gera þetta að veruleika.
Mótið byrjar í dag og verður spilað í Grundarfirði frá 17:20 og fram á kvöld og svo verður spilað í Grundarfirði og Ólafsvík á laugardag frá 8:00 - 20:00 og sunnudag frá 8:00 - 16:00.
Við hvetjum ykkur til að koma og fylgjast með krökkunum keppa um helgina.
Áfram UMFG - alltaf 🏐🙌




Comments