Fyrsti hluti Íslandsmótsins afstaðinn
Um helgina fór fram fyrsti hluti Íslandsmótsins í krakkablakinu. Mótið var haldið í Kópavogi í umsjá HK, keppt var í Kórnum, Fagralundi og Digranesi. UMFG átti fimm lið á mótinu og stóðu þau sig öll mjög vel. Mót sem þessi eru til þess fallin að þjappa saman hópinn, eiga góðar stundir með vinunum og fá að takast á við ýmsar áskoranir sem fylgja svona móti. Þess má geta að á svona mótum keppa krakkarnir ekki aðeins heldur þurfa þeir að dæma aðra leiki, sjá um línuvörslu og stigagjöf. Þetta er því heilmikill lærdómur fyrir krakkana að fara á svona mót. Sumir voru að stíga sín fyrstu skref á móti og er alltaf gaman að sjá krakkana taka framförum og blómstra á svona mótum. Annar hluti Íslandsmótsins verður haldinn á Akureyri í janúar.
U16 strákarnir unnu alla sína leiki um helgina 2-0 og standa efstir í sínum riðli með 15 stig. Þess má geta að í liðinu eru þrír strákar úr U14 flokki sem spiluðu með báðum flokkum.

U16 stelpurnar keppnu í A riðli og enduðu með 6 stig eftir helgina og eru því í 6.sæti í riðlinum. Í liðinu eru fjórar stelpur sem kepptu einnig með U14 liðinu.

Í U14 flokki stráka voru tvö lið. U14 rauðir unnu alla sína leiki 2-0 og eru á toppi riðilsins með 18 stig. U14 grænir stóðu sig einnig vel og enduðu með 6 stig eftir helgina og skipa 5 sætið í riðlinum.


U14 stelpur kepptu einnig í A styrkleika og unnu þær alla sína leiki og eru því efstar í sínum riðli með 20 stig.

Við erum stolt af okkar krökkum og því góða starfi sem við bjóðum upp á fyrir börnin okkar.
Ekki er hægt að fara á svona mót án stuðnings frá foreldrum sem taka að sér liðsstjórn, gista með hópnum og skutla á milli staða. Ásamt allri þeirri skipulagningu sem stjórn blakdeildar sér um í sjálfboðavinnu.
Takk allir - þetta væri ekki hægt án ykkar!
Áfram UMFG - Alltaf!



Comments