top of page
Search

Alexandra með U18 á EM í Riga

  • umfgrund
  • Jul 12
  • 2 min read

Íslenska U18 stúlknalandsliðið lauk í vikunni sinni fyrstu þátttöku á lokamóti Evrópumóts U18 í blaki. Mótið fór fram í Riga í Lettlandi og markaði tímamót í íslensku blaki, enda í fyrsta sinn sem íslenskt stúlknalandslið í þessum aldursflokki tryggði sér sæti á meðal sextán bestu þjóða Evrópu. 


Hópurinn ásamt þjálfurum og fylgdarliði
Hópurinn ásamt þjálfurum og fylgdarliði

Framundan beið ein sterkasta riðlakeppni sem hægt var að hugsa sér. Ísland mætti Evrópuþjóðum á borð við Ítalíu, Tyrkland, Pólland, Spán, Belgíu, Tékkland og heimakonum frá Lettlandi. Þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki fallið með íslenska liðinu sýndu stelpurnar mikinn karakter, dugnað og óbilandi baráttuvilja í öllum sjö leikjunum. (⁠www-old.cev.eu)


Alexandra að gefa upp
Alexandra að gefa upp

Fyrir margar stelpnanna var þetta í fyrsta sinn sem þær spiluðu á jafn stórum vettvangi. Þær fengu að keppa gegn framtíðarlandslið konum stærstu blakþjóða Evrópu og upplifa þann hraða, kraft og gæði sem einkenna efsta stig unglingablaks. Slík reynsla verður ekki metin til stiga heldur mun hún nýtast þessum efnilegu leikmönnum um ókomin ár.

Þótt lokastaðan hafi verið sjöunda sæti í riðlinum án sigurs sýndu stelpurnar fram á miklar framfarir í mótinu. Í hverjum leik var barist fyrir hverju stigi, stelpurnar studdu hvora aðra og liðsandinn var til fyrirmyndar. 


Árangurinn felst ekki aðeins í úrslitatölunum heldur í því að Ísland hefur nú stigið mikilvægt skref inn á stærsta svið Evrópublaks í þessum aldursflokki. Þátttakan sýnir að markviss uppbygging yngri landsliða og öflugt starf félaganna um land allt er að skila sér.


Mót sem þetta krefst mikils undirbúnings. Alexandra hefur dvalið í Reykjavík allan júní til þess að sækja æfingar tvisvar á dag með U18 landsliðinu.


Alexandra Björg var valin maður leiksins í fyrsta og síðasta leik mótsins og var hún félaginu og öllum til sóma.


Alexandra að taka á móti viðurkenningu á manni leiksins
Alexandra að taka á móti viðurkenningu á manni leiksins

Til hamingju með flotta frammistöðu á mótinu Alexandra, það er dýrmætt fyrir yngri iðkendur að fylgjast með þér vaxa og ná jafn glæsilegum árangri og raun ber vitni. Alexandra er góð fyrirmynd fyrir þá sem yngri eru.


Alexandra vill koma fram sérstökum þökkum til þeirra sem studdu við bakið á henni í þessu verkefni og er það henni ómetanlegt.


 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page