Moli frá KSÍ í heimsókn
- umfgrund
- Jun 26
- 1 min read
Moli frá KSÍ kom í heimsókn í gær í áttunda sinn og hélt æfingu fyrir krakkana hjá UMFG. Æfingin var opin öllum en 18 krakkar á öllum aldri mættu á æfinguna, þrátt fyrir að stór hópur iðkenda hafi verið að spila á Íslandsmótinu á Hvolsvelli og eldri iðkendur verið í vinnu.
Mikið rigndi á meðan á æfingunni stóð og létu krakkarnir það ekkert á sig fá og héldu ótrauð áfram. Moli færði félaginu 20 vesti og 5 bolta að gjöf og þökkum við KSÍ fyrir það.
Moli hafði orð á því hvað væri gaman að sjá völlinn okkar og hversu vel væri hugsað um hann og að það væru 6 mörk klár og völlurinn merktur og klár í leiki. Þá hafði hann einnig orð á því að hér væru krakkarnir kurteisir og þeir eldri duglegir að aðstoða þá yngri.
Við þökkum Mola fyrir komuna ⚽️.





Comments