top of page
Search

Fótboltamót sumarsins

  • umfgrund
  • Aug 5
  • 2 min read

Krakkarnir frá UMFG hafa í sumar farið á fjölmörg fótboltamót. Krakkarnir stóðu sig vel á öllum mótunum og höfðu gaman af samverunni og viðburðum mótanna. Þau voru bæði sér og félögum sínum til sóma.


7.-8.flokkur hélt á Norðurálsmótið á Akranesi í lok júní. Yngstu krakkarnir spiluðu einn dag en þeir eldri þrjá daga. Snæfellsnes samstarfið fór með þrjú lið á helgarmótið í 7.flokki, þ.e. tvö strákalið og eitt stelpulið. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og nutu þess að keppa í góða veðrinu.


Lið 2 með Andra þjálfara
Lið 2 með Andra þjálfara
Foreldrar fögnuðu sigri með því að gera göng
Foreldrar fögnuðu sigri með því að gera göng

Í byrjun júlí héldu 5.flokks strákarnir á N1 mótið á Akureyri. Samstarfið fór með tvö lið á mótið og spiluðu bæði liðin vel. Í fyrsta sinn í sögu samstarfsins áttum við lið í besta styrkleikanum og stóðu þeir sig mjög vel á mótinu þrátt fyrir að mæta sterkustu liðum stóru félaganna. Lið 2 stóð sig einnig mjög og hafnaði í 3.sæti í sínum styrkleikaflokki. Gunnar Andri og Pálmi þjálfarar UMFG fóru með strákana á mótið.


Gunnar og Pálmi með liði 1
Gunnar og Pálmi með liði 1
Gunnar og Pálmi með liði 2
Gunnar og Pálmi með liði 2

Um miðjan júlí var Símamótið haldið í Kópavogi. Samstarfið fór með fjögur lið á mótið, tvö í 7.flokki, eitt í 6.flokki og eitt í 5.flokki. Annað liðið hjá 7.flokki sigraði sinn styrkleikaflokk, stelpurnar í 6.flokki og 5.flokki enduðu í 2.sæti. Stelpurnar stóðu sig eins og hetjur á mótinu.


Stelpurnar í 6.flokki
Stelpurnar í 6.flokki
6.flokks stelpur með þjálfurunum
6.flokks stelpur með þjálfurunum

Þá fór 4.flokkur á ReyCup sem haldið var í Laugardalnum í endan júlí. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og var mótið skemmtilegt í alla staði. Krakkarnir voru sér og félögum sínum til sóma.



Það er gaman að sjá krakkana okkar uppskera á mótum sem þessum. Það er einnig gaman að sjá að þrátt fyrir að félagið okkar sé ekki stærra en þetta erum við að ná frábærum árangri á þessum mótum og stöndum á svipuðum jafnvíg stóru félögunum.



 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page