Norðurálsmótið
- umfgrund
- Jun 25
- 1 min read
Norðurálsmótið var haldið um síðastliðna helgi á Akranesi. Mótið er fyrir 7.flokk. Snæfellsnes samstarfið tefldi fram þremur liðum. Einu stelpuliði og tveimur strákaliðum. Mótið hófst á skrúðgöngu á föstudagsmorgun og mótssetningu. Að því loknu hófust fyrstu leikir mótsins. Spilað var í tveimur hollum - fyrri hluta dags og seinni hluta dags. Veðrið lék við mótsgesti og stóðu krakkarnir sig mjög vel á mótinu. Þá fjölmenntu keppendur og fjölskyldumeðlimir á kvöldvökuna sem var haldin á laugardagskvöldið. Þar stigu Luigi og VÆB bræður á stokk við mikinn fögnuð. Mótinu lauk um miðjan sunnudag og voru keppendur leystir út með verðlaunapeningi og bol.
Mót sem þetta er mikilvægt til að þjappa saman hópinn, upplifa ævintýri saman og upplifa sig jafnframt sem fótboltastjörnu. Gleðin var svo sannarlega við völd. Myndirnar tala sínu máli.
Tommi tók myndir af tveimur liðanna á föstudeginum. Við þökkum honum fyrir myndirnar.






