top of page
Search

Þrjú lið á Íslandsmóti

umfgrund
6 days ago
1 min read

UMFG átti þrjú lið á fyrsta hluta Íslandsmótsins í blaki um helgina. 2.deild kvenna keppti í Reykjavík, 5.deild kvenna á Neskaupstað og 3.deild karla á Ísafirði.


2.deild kvenna stóð sig vel og unnu tvo leiki í oddahrinu. Liðið er skipað reynslumiklum leikmönnum í bland við leikmenn sem eru að spila í fyrsta sinn í 2.deild. Tvær ungar stelpur kepptu með þeim þessa helgi en það voru þær Amanda og Hrafney.





5.deild kvenna stóð sig vel þrátt fyrir tap í öllum leikjum. Liðsandinn var góður og var flott barátta. Mikið var um persónulega sigra og miklar framfarir. Mikið er af nýjum leikmönnum í liðinu sem eru að stíga sín fyrstu skref á vellinum.




3.deild karla vann alla leikina sína um helgina og eru því efstir í riðlinum. Liðið er skipað ungum leikmönnum í bland við eldri leikmenn. Hans Bjarni, Kyrylo , Kristján Pétur og Daniel eru að spila í fyrsta skipti í meistaraflokki og erum við mjög stolt af þessum efnilegu strákum. Það er langt síðan UMFG átti karlalið á Íslandsmóti og fögnum við því.





Helgar sem þessar eru gott hópefli fyrir liðin en þeir leikmenn sem fóru á Neskaupstað og Ísafjörð þurftu frí í vinnu og skóla á föstudaginn vegna veðurs, svo þeir kæmust leiðar sinnar. Dæmi eru um að heilu fjölskyldurnar hafi verið á tveimur og þremur mismunandi stöðum að keppa um helgina.


Annar hluti Íslandsmótsins fer fram fyrstu helgina í febrúar og keppir 2.deild kvenna þá á Ísafirði og 5.deild kvenna og 3.deild karla í Mosfellsbæ.

 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page