top of page
Search

Vel heppnað blakmót

  • umfgrund
  • May 24
  • 1 min read

Helgina 15. - 17. maí fór fram þriðji og síðasti hluti Íslandsmótsins í U12 (undir 12 ára) og U14 (undir 14 ára) flokki. Stjórn blakdeildar ásamt formanni UMFG hafa staðið í ströngu á undanförnum mánuðum við skipulagningu mótsins, en skipulagning hófst fyrir um ári síðan þegar ljóst var að við myndum halda mótið. Það þarf að huga að mörgu við skipulagningu slíks móts og er þetta ekki hægt án allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg þessa helgi. Einnig hefði þetta ekki verið hægt án góðs samstarfs við Grundarfjarðarbæ og Snæfellsbæ.


Alls voru keppendur rúmlega 200 talsins og þjálfara og liðstjórar um 45.

Keppt var bæði í Grundarfirði og Ólafsvík og var spilað langa daga til að koma öllum leikjum fyrir. Gist var í Grunnskóla Grundarfjarðar og voru nánast allar stofur nýttar til gistingar, einnig voru bæði Grunnskóli Grundarfjarðar og Grunnskóli Snæfellsbæjar nýttir til að bera fram mat fyrir alla keppendur. Þess má geta að foreldrar sáu um að elda og bera fram matinn á báðum stöðum, ásamt því að iðkendur og foreldrar sáu um að standa vaktir í sjoppu á báðum stöðum. Þá bauð Grundarfjarðarbær öllum keppendum, þjálfurum og liðsstjórum í sund og var opnunartími sundlaugarinnar lengdur þessa helgi.


Mikil ánægja var á meðal keppenda og foreldra með mótið og erum við ánægð með hvernig til tókst.


Við viljum þakka stjórn blakdeildar fyrir sitt óeigingjarna starf, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ og öllum þeim fjölmörgu foreldrum með lögðu hönd á plóg! Takk fyrir ykkar ómetanlega framlag. Án ykkar allra hefði þetta ekki verið gerlegt.


Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem lýsa stemningunni.

Tómas Freyr tók myndirnar og þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag.




 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page