Aðalfundur félagsins
- umfgrund
- 7 days ago
- 2 min read
Aðalfundur félagsins var haldinn í samkomuhúsi Grundarfjarðar fimmtudaginn 19. febrúar sl. Ágætlega var mætt á fundinn og sköpuðust góðar umræður um starf félagsins.
Breytingar urðu á stjórn félagsins en Guðbrandur Gunnar Garðarsson sem setið hefur í stjórn síðastliðin ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og kom Eva Kristín Kristjánsdóttir inn í hans stað sem meðstjórnandi. Við þökkum Gunnari fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og bjóðum Evu Kristínu velkomna í stjórn.
Farið var yfir starfsskýrslu félagsins en mikið hefur verið um að vera á síðasta ári. Við höfum haldið áfram uppbyggingu félagsins og nú á vormánuðum munum við opna píluaðstöðu að Grundargötu 30 og bjóða upp á pílustarf fyrir bæði börn og fullorðna. Þá hefur félagið óskað eftir að sveitarfélagið komi að starfi framkvæmdarstjóra félagsins en umfang félagsins er mikið og teljum við að með slíku starfi verði starf félagsins enn betra og faglegra. Við höfum horft til annarra sveitarfélaga, m.a. á Snæfellsnesi þar sem sveitarfélagið greiðir laun framkvæmdarstjóra ungmennafélagsins með góðum árangri. Það er því von okkar að það verði að veruleika á næstu mánuðum.
Breytingar voru gerðar á lögum félagsins í samræmi við breytingar á lögum ÍSÍ og UMFÍ og munu ný lög koma inn á heimasíðuna þegar laganefnd hefur samþykkt þau.
Reksturinn gengur vel og höfum við lagt okkur fram við að bjóða upp á fjölbreytt starf til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir iðkenda okkar. Það hefur heppnast vel og er góð mæting í allar greinar sem félagið býður uppá.
Þá hefur félagið lengi boðið upp á 50% systkina og fjölgreinaafslátt og haldið gjaldskránni nánast óbreyttri þrátt fyrir launahækkanir þjálfara. Við teljum að með þessu fyrirkomulagi gerum við börnum og fjölskyldum þeirra kleift að taka þátt í íþróttastarfinu, jafnvel í fleiri en einni grein.
Lengi lifi ungmennafélagsandinn og okkar frábæra félag UMFG!



Comments