top of page
Search

Fimleikadeild UMFG í heimsókn hjá ÍA

  • umfgrund
  • May 11
  • 1 min read

Sunnudaginn 10. maí fóru 19 iðkendur og Halla Karen þjálfari frá UMFG á fimleikaæfingu í fimleikahúsinu á Akranesi. Það var ótrúleg upplifun fyrir krakkana og þjálfara að koma inn í svona glæsilegt fimleikahús og taka eina góða æfingu.


Sólrún, þjálfari hjá ÍA, skipulagði og sá um æfinguna af fagmennsku og gerði daginn einstaklega skemmtilegan fyrir krakkana. Halla Karen fékk að vera til staðar og aðstoða við æfinguna.


Við erum þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri á að taka æfingu í nýja fimleikahúsinu þeirra og viljum við þakka ÍA kærlega fyrir að taka á móti okkur.



 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page