top of page
Search

Gott gengi á Vormóti Keflavíkur

  • umfgrund
  • Mar 30
  • 1 min read

Um helgina fór fram vormót Keflavíkur í Garðinum. Sex lið fóru frá félaginu, þrjú lið í U12 flokki, þar af tvö stráka lið og eitt stelpulið. Þá fóru þrjú lið í U14 flokki, eitt stelpulið og tvö þriggja manna strákalið. Þess má geta að okkar litla félag var með flesta iðkendur á mótinu.


Krakkarnir sem tóku þátt í Vormóti Keflavíkur ásamt þjálfurum félagsins þeim Mladen og Grétu
Krakkarnir sem tóku þátt í Vormóti Keflavíkur ásamt þjálfurum félagsins þeim Mladen og Grétu

Krakkarnir stóðu sig frábærlega og voru félaginu algjörlega til sóma. Það er mjög gaman að fara með krakkana á svona mót og sjá þá vaxa og taka framförum í íþróttinni. Framtíðin er björt.


U12 rauðir 1. sæti - Alexander Guðni, Aron Leví, Hilmar Örn og Magni Rúnar

U12 grænir 2. sæti - Guðni Berg, Ísleifur Andres og Kjartan Alexander

U12 bláar 1. sæti - Aþena Kristín, Friðmey Ósk og Valeria

U14 kk svartir 4. sæti - Alexander Guðni, Aron Leví, Hilmar Örn og Magni Rúnar

U14 kk gulir 2. sæti - Kristján Pétur, Kyrylo og Þórhallur Aron

U14 kvk 4. sæti - Aníta, Aþena Kristín, Carmen, Emilía Rós, Ellen Alexandra og Telma Dís


U14 - Gulir
U14 - Gulir
U12 - Bláar
U12 - Bláar
U12 rauðir og U14 svartir
U12 rauðir og U14 svartir
U12 grænir
U12 grænir
U14 stelpur
U14 stelpur

Við erum einstaklega stolt af okkar iðkendum og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn um helgina.


Sex iðkendur fóru í æfingabúðir um helgina að vegum BLÍ fyrir unglinga fædda 2008-2011 sem voru haldnar í Mosfellsbæ. Krakkarnir nutu æfinganna og eru reynslunni ríkari heim eftir frábæra helgi. Einnig var Alexandra Björg á fyrstu æfingahelginni af mörgum fyrir EM sem verður í sumar með U18 landsliðinu.


Krakkarnir sem fóru í æfingabúðir í Mosfellsbæ
Krakkarnir sem fóru í æfingabúðir í Mosfellsbæ

Áfram UMFG alltaf 🏐💙


 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page