top of page
Search

Heimsókn frá John Kessel

  • umfgrund
  • Apr 23
  • 1 min read

Við fengum til okkar frábæra heimsókn frá John Kessel. Hann hefur starfað sem þjálfari og leiðbeinandi fyrir USA volleyball, FIVB, NORCECA, World ParaVolley og Special Olympics. Hann býr yfir víðtækri reynslu af þróunarstarfi og þjálfun á alþjóðavettvangi. Hann er þekktur fyrir nýstárlegar aðferðir og mikla áherslu á að byggja upp fjölbreytt blakumhverfi þar sem allir fá tækifæri til að taka þátt. Hann fór yfir margt fróðlegt og skemmtilegt með krökkunum og erum við mjög þakklát fyrir að fá hann í heimsókn til okkar. Með honum voru þær Thelma Dögg Grétarsdóttir og Rósborg Halldórsdóttir. Krakkarnir voru mjög spenntir fyrir þessu og tóku vel á móti honum í dag.


Blakdeild UMFG þakkar kærlega fyrir heimsóknina 🏐🙌🏼🏐


Eldri hópurinn á æfingu
Eldri hópurinn á æfingu





Yngri hópurinn
Yngri hópurinn



 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page