Skemmtileg fimleikasýning
- umfgrund
- Mar 10
- 1 min read
Laugardaginn 7. mars buðu krakkarnir í fimleikadeild UMFG á stórglæsilega fimleikasýningu. Til stóð að halda jólasýningu en vegna mikilla anna var ákveðið að fresta sýningunni til betri tíma og hefur Halla Karen ásamt krökkunum lagt mikla vinnu í að skipuleggja sýninguna. Krakkarnir tóku þátt í lagavali á sýningunni ásamt því að eldri krakkarnir aðstoðuðu þau yngri á sýningunni sjálfri. 27 iðkendur tóku þátt í sýningunni, en félagið hefur boðið upp á tvískiptar æfingar fyrir grunnskólabörn einu sinni í viku. Gaman var að sjá hversu margir sáu sér fært um að mæta og sjá krakkana leika listir sínar.
Sýning sem þessi er mikilvægur þáttur í starfinu - krakkarnir öðlast sjálfstraust, ábyrgð og jafnframt stolt af afrekum sínum. Einnig læra krakkarnir að koma fram í viðeigandi klæðnaði og sýna viðeigandi hegðun. Þá fá foreldrar betri innsýn inn í starf félagsins og sjá hvað krakkarnir hafa verið að læra í vetur.
Það má með sanni segja að krakkarnir voru allir fimleikastjörnur eftir þennan dag því þau vöktu mikla lukku meðal áhorfenda.
Takk fyrir komuna og vonandi munum við fá að njóta frekari sýninga í náinni framtíð.












Comments