Síðasti heimaleikur vetrarins
- umfgrund
- 4 days ago
- 2 min read
Stelpurnar í 1.deild tóku á móti Fylki á miðvikudaginn síðastliðinn þar sem stelpurnar spiluðu frábæran leik. Fyrsta hrinan fór 25-18 okkur í vil. Vert er að nefna að Silja Guðnadóttir var í venjulegum búning að þessu sinni, en hún er vanalega í hlutverki libero og kom inná í uppgjöf þegar staðan er 11-14 Fylki í vil. Þegar Fylkir tókst að stoppa hana þá var hún búin að koma okkur yfir og staðan var 16-14. Svo óhætt að segja að Silja snéri leiknum við og Katrín Reyes fór í uppgjöf og náði sjö uppgjöfum í röð og kláraði hrinuna með ás.
Hrina 2 var aðeins jafnari og meiri barátta á báða bóga og endaði hrinan 25-20 fyrir UMFG.
Í upphafi þriðju hrinu var meira öryggi í liði UMFG og voru þær komnar í örugga stöðu 22-16 en þá sýndu Fylkiskonur hvað í þeim býr og skoruðu 7 stig í röð og komust yfir og var staðan þá 22-23. Okkar konur risu upp og kláruðu þennan leik 25-23.
Í þessum leik voru tveir leikmenn að stíga sín fyrstu skref í 1.deild í meistaraflokki þær Telma Dís fædd 2013 og Valdís Erla fæddar 2009. Ellen Alexandra var að spila sinnan annan leik fyrir liðið en hún er einnig fædd árið 2013. Við erum ótrúlega stolt og montin af iðkendum okkar og okkar litla blak samfélagi.
Eftir leik var Anna María heiðruð og afhentur blómvöndur og kampavín ásamt búningnum sem var boðinn upp fyrr í vetur. Búningurinn er merktur Önnu Maríu og hafa allar konur í meistaraflokk skrifað nafnið sitt á búninginn. Þessi búningur verður svo hengdur upp í íþróttahúsinu. En Anna María var heiðruð því hún var að spila sinn síðasta heimaleik fyrir UMFG.
Stelpurnar okkar í 1.deild eru í 3. - 4. sæti og munu því keppa til úrslita, helgina 10. - 12. apríl þar sem efstu liðin í deildinni mætast og keppa um Íslandsmeistaratitilinn. Við óskum við þeim góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með þeim.
Við þökkum Tómasi Frey kærlega fyrir allar þær ljósmyndir sem hann hefur tekið í vetur fyrir liðið og deilt með okkur. Það er ómetanlegt að eiga góðar myndir af starfinu.








Comments