top of page
Search

Síðasti hluti Íslandsmótsins í 5. deild

  • umfgrund
  • Mar 24
  • 1 min read

Um helgina fór fram þriðji og síðasti hluti Íslandsmótsins hjá 5. deildinni í blaki. Mótið var haldið í Fagralundi í Kópavogi. Stelpurnar voru að berjast fyrir því að falla ekki niður um deild og tóku þær verkefninu mjög alvarlega.


Á síðustu tveimur árum hefur liðið verið það sama en liðið er blandað af ungum og eldri leikmönnum. Liðið skipa eftirfarandi leikmenn: Helga Sjöfn, Lilja Dóra, Elísabet Kristín , Sigurborg, Valgerður, Alexandra Björg, Amanda Kolbrún, Fanney Lilja, Ingibjörg Eyrún, Valdís Erla og Ellen Alexandra. Þrjár síðastnefndu eru allar að spila sitt fyrsta tímabil með liðinu. 


Á laugardeginum voru þrír leikir, leikirnir voru spennandi og enduðu þeir allir í oddahrinu. Stelpurnar unnu þó alla leikina 2-1 og voru því komnar með 6 stig eftir daginn.


Á sunnudeginum kepptu þær tvo leiki og unnu þær báða leikina sannfærandi sigur 2-0.

Þær kláruðu helgina á fimm góðum sigrum og enduði því efstar í B-úrslitum með 12 stig. Þær munu því halda áfram að keppa í 5. deildinni í haust.


Tómas Freyr tók myndir af liðinu um helgina og fangaði mörg skemmtileg augnablik. Takk Tommi.


Liðið sem keppti um helgina.
Liðið sem keppti um helgina.

 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page