top of page
Search

Vel heppnuð uppskeruhátíð

  • umfgrund
  • Jun 18
  • 2 min read

Árleg uppskeruhátíð félagsins var haldin í gær 17. júní. Dagskrá hófst kl. 9:45 við Grundargötu 30 þar sem upphitun hófst fyrir Grundarhlaup og Kvernárhlaup. 56 keppendur tóku þátt í hlaupunum að þessu sinni og er það töluverð fjölgun frá fyrri árum. Veðrið var gott en svolítið vindasamt svo Grundarhlaupið var nokkuð strembið þar sem hlaupa þurfti á móti vindinum helming leiðarinnar. Keppendur létu það ekki á sig fá og voru yngstu keppendur á sjöunda ári á meðan sá elsti var 60. ára. Það er ánægjulegt að sjá að allur aldur er að taka þátt í viðburðum á vegum félagsins. Kjörbúðin styrkti félagið um ávexti fyrir hlaupið og bauðst hlaupurum að fá sér hressingu fyrir og eftir hlaup.


Keppendur sem tóku þátt í Grundarhlaupi. Hlaupið er 5 km.
Keppendur sem tóku þátt í Grundarhlaupi. Hlaupið er 5 km.

Keppendur í Kvernárhlaupi - hlaupið er 1,25 km.
Keppendur í Kvernárhlaupi - hlaupið er 1,25 km.

Sigurvegarar í Grundarhlaupi:

1.sæti - Guðni Berg

2.sæti - Gunnar Andri

3.sæti - Almar



Sigurvegarar í Kvernárhlaupi:

1.sæti - Hafþór Andri

2.sæti - Emil Orri

3.sæti - Aþena Kristín



Þegar að hlaupin voru búin var haldið upp í sundlaug þar sem 17. júní sundmót félagsins var haldið. 16 keppendur kepptu að þessu sinni og er það einnig fjölgun frá fyrri árum.


Keppendur á sundmótinu
Keppendur á sundmótinu

Síðan tók við pylsugrill í boði félagsins og safar í boði Mæstro. Þá fengu allir iðkendur félagsins gjöf frá félaginu. Þeir sem ekki voru viðstaddir geta haft samband við Ingibjörgu og fengið gjöfina sína.

Ingibjörg Eyrún og Gyða Rós settu á pylsur
Ingibjörg Eyrún og Gyða Rós settu á pylsur

Sólveig Ásta og Harpa Rún afhentu gjafir
Sólveig Ásta og Harpa Rún afhentu gjafir

Dagskrá lauk með viðurkenningum fyrir hlaupin, sundið, íþróttaskólann og fyrir bestu mætingu og framfarir í öllum greinum.


Fimleikar

Besta mæting: Elías Dór

Mestu framfarir: Elísa Björk


Blak

Besta mæting: Alexander Guðni

Mestu framfarir: Carmen Bylgja


Fótbolti

Besta mæting: Ísak Ernir

Mestu framfarir: Kristín María


Frjálsar

Besta mæting: Birgir Leifur

Mestu framfarir: Bylgja


Rafíþróttir

Besta mæting: Leon Logi

Mestu framfarir: Gabríel Freyr


Badminton:

Besta mæting: Andri

Mestu framfarir: Kjartan Alexander


Ísak Ernir
Ísak Ernir







Við viljum þakka Kjörbúðinni og Mæstro street food fyrir stuðninginn og Tomma fyrir myndirnar.



Runólfur og Tryggvi grilluðu pylsur fyrir gesti
Runólfur og Tryggvi grilluðu pylsur fyrir gesti




 
 
 

Comments


Back to Top
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Sólvöllum 3
350 Grundarfjörður 
umfgrund@gmail.com
Back to Top
bottom of page