Úrslitakeppni í 1.deildinni
- umfgrund
- 4 days ago
- 2 min read
Helgina 10. - 12. apríl fór fram úrslitakeppni hjá 1. deild kvenna í Laugardalshöll. Stelpurnar kepptu tvo leiki þessa helgi, einn á laugardeginum kl. 12:30 og seinni leikurinn var kl. 11:00 á sunnudeginum. Það vantaði einn leikmann í hópinn, en Katrín Sara Reyes hefur verið góð viðbót við 1. deildina í vetur. Hrafney Dóra kom inn í liðið í sinn fyrsta leik með meistaraflokki og stóð sig mjög vel og á svo sannarlega heima í þessum hóp.
Fyrri leikurinn var spilaður gegn sterku liði Ýmis HK og höfðu Ýmis konur betur og töpuðu stelpurnar 3-0.
Stelpurnar kepptu því um bronsið á sunnudeginum á móti HK B. Stelpurnar gáfu allt í þetta en það því miður dugði það ekki til í þetta skiptið. Þess má geta að hún Guðrún Jóna fékk högg í andlitið og fór útaf með skurð á auga, hún gerði sér samt lítið fyrir og kom aftur inn á eftir smá aðhlynningu og kláraði leikinn. Sýnt var frá báðum leikjum þeirra á facebooksíðu félagsins svo fólk sem komst ekki í höllina gat fylgst með. Það var stór hópur af fólki sem kom og hvatti stelpurnar okkar áfram og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn. Stelpurnar þakka einnig kærlega fyrir stuðninginn í allan vetur, stúkan hefur verið frábær og allir sem hafa aðstoðað þær við leikina, umgjörð og fleira. Einnig hefur verið gaman að fá allar þessar flottu myndir frá Tómasi Frey í vetur. Það gerir svo mikið fyrir starfið þetta væri ekki hægt án ykkar allra, svo þúsund þakkir til ykkar!
Framtíðin er björt hjá UMFG, alls tóku fimm stelpur úr barnastarfi félagsins þátt í meistaraflokksleikjum í vetur. Það voru þær Amanda Kolbrún, Fanney Lilja, Hrafney Dóra, Ellen Alexandra og Telma Dís.
Nú hafa báðar deildir lokið keppni á þessu tímabili og aðeins eitt verkefni framundan hjá meistaraflokki sem er öldungamót. Það er haldið 30. apríl - 3. maí á Akureyri og verður UMFG með eitt lið í 4. deild þetta árið.







Comments